Myndir úr sJósundinuBerglind Edvardsdóttir

Jæja gott fólk bara smá skýrsla um það að ég fór með vinnufélögum í sjósund, en að ég skyldi drífa mig með kemur nú út af því að sjá sem skipulagði þetta sendi út áskorun, meðal annars á Drekana(hjólafélagið sem ég er í í ráðuneytinu) hann vildi vita hvort við værum eins töff og við létum, þetta var nóg til að kveikja í mér, og sé ég ekki eftir því, þetta var ótrúlega skemmtilegt, því að fyrir utan að ´drífa sig í sjóinn þá fórum við í fyrstu haustlægðinni, það var rok og rigning og bölvuð brælaGlottandiþað gaf vel yfir mann,en ég sem er nú alltaf að drepast úr pjatti, mætti nátturlega máluð í vinnuna og ætlaði nú bara að synda svona a la Salalaug, en það sem sagt virkaði ekki en var nú samt furðulega heppin að vera ekki svört niður á kinnUllandiþað var samt ekkert svo kalt, það var 12 gráður bæði í sjó og lofti skv, veðurstofunni, og það var bara að hlaupa út í sem og við gerðum, og var þetta kalt fyrst bara í smástund eiginlega, ótrúlega fljótt að jafna sig, ég veit reyndar ekki hvað við vorum lengi ofaní en það var dágóð stund,ég ætla nú að finna út úr því, ég set tímann inn hérna, en  maður dofnaði vel, þvi að þegar ég kom upp úr þá fossaði blóð úr hælnum á mér, en ég hafði ekki fundið fyrir því að ´hafa rekið fótinn í neins staðar, en það var það sem ég fann þegar ég kom út í að ég þorði ekki að fara langt út, er með fóbíu fyrir því að vera ekki með fast undir fótunum, síðan þegar upp var komið, þá var bara ekkkert kalt, og orum við drjúga stund að láta mynda okkur, og spjalla og njóta þess að láta adrenalínið flæða, algerlega meiri háttar, ég mun seta fleiri myndir inn á mánudaginn, þær tala sýnu máli og lýsa þessu bestSvalur

SjósundBerglind Edvardsdóttir

Jæja er nú búin að segja það að sumir eru klikkaðri en aðrirGlottandi en ég er sem sagt að fara í sjósund í Nauthólsvíkinni með hópi af fólki úr ráðuneytinu, eftir nákvæmlega 15 mín verður lagt af stað héðan og ég er hætt að geta einbeitt mér í vinnunni Ullandiskrifa meira á eftir þegar og takið eftir að ég segi þegar en ekki ef Brosandiég er búin að, ef ekki synda þá allavega dýfa mér í sjóinnSvalur

Hafnarfjall breytt í Helgafell og máliđ dauttBerglind Edvardsdóttir

Svo segir Halli forystusauður allavegaGlottandien málið var að veðrið var nú ekki upp á sitt allra besta í gær það rigndi greinilega upp í Borgarfirði þó að það hefði stytt upp í bænum og eins og ég komst að þegar ég fór að labba, verulega hlýtt, en sem sagt það var hætt við Hafnarfjall og farið á Helgafell í Mosó, sem betur fer þar sem ég hefði ekki viljað fara í lengri göngu núna, komst að því þegar ég fór að labba, að maður ótrúlega fljótur að dala í forminu, þó að það sé fljótt að koma til baka, enn þetta varð nú hin yndislegasta ferð í ljúfu veðri og fannst mér gott að vera komin af stað, eiginlega bara æði, er svo gott að arka svona af stað, og að sjálfsögðu í þessum góða félagsskap, vorum samt frekar fá eða 8, við vorum að labba í u.þ.b klst, var nú bara tekið það rólega, borða krækiber og bláberUllandisem var bara slatti af þarna og já Þorbjörg fræddi okkur um sveppi, sem var nú eitthvað af þarna líka. Þetta var fyrsta formlega ferð hins nýstofnaða ferðafélagsGlottandiLabbitúrafélagið Stígur Stuttlungur og var hún bara vel heppnuð þó að mætingin hefði mátt vera betri. See you soonSvalur

Jćja jáBerglind Edvardsdóttir

Jæja þá er nú komið að fyrstu ferð vetrarins, fjallagönguferð vel að merkja, en ég ætla að fara í mínu fyrstu göngu í nýstofnuðum ferðaklúbbi eða hvað á að kalla þetta, við sem höfum verið að labba saman erum sem sagt formlega orðinn gönguklúbbur, eða mér finnst nú betra að kalla okkur göngufélaga, og heitum við Labbitúrafélagið Stígur Stuttlungur Hlæjandihvernig líst ykkur á það hehe flott nafn finnst okkur allavega, enn sem sagt þá á að fara á Hafnarfjallið á morgun, og verð ég að segja að þá er ég allavega búin að labba á þau fjöll sem "tilheyra" mér en ég sem sagt er búin að fara á "fjallið" GlottandiÞorbjörn en þar búa og bjuggu krakkarnir mínir, svo fór ég á Akrafjallið en þar bjó ég til þrítugs, svo er það Hafnarfjallið en ég var mikið í Borgarnesi sem krakki hjá ættingjum mínum og horfði mikið á Hafnarfjallið, þótti það alltaf svo fallegt á litinn, þetta eru sem sagt mínar tengingar við þessi fjöll. Annars er það að frétta að það var opið hús í utanríkisráðuneytinu í gær, á menningarnótt frá 2-6 ég var að vinna og var þetta alveg frábær dagur, það komu yfir 3000 manns og af því komu 1000 á fyrsta klukkutímanum, og hafði fólk greinilega gaman af því að kikja á bak við tjöldin og heyrði ég oft sagt, já er það ekki vissi ég að þið gerðuð þetta eða hitt, eða ja ég er nú búin að losa mig við fullt af fordómum, þetta var skemmtilegur dagur sem endaði í boði heima hjá ráðherra, allir sem voru að vinna, makar og börn, boðið í grill, pulsur og kjúkling, einfalt og skemmtilegt, góður endir á skemmtilegum degi.......hjá flestum, en ég þurfti að sjálfsögðu aaaaðeins að kíkja í bæinn, horfði meðal annars á frábæra flugeldasýningu með að sjálfsögðu mínum elskuegu vinum í sólóHlæjandien nú hef ég ákveðið að breyta um gír enda kominn vetur, snúa mér meira að  því að fara í göngur, vinna meira og fara að dansa salzaUllandiadios amigosSvalur

Heia NorgeBerglind Edvardsdóttir

Hér er mikið knúsast, mikið borðað og drukkið smáaaa hvítvín og voooða lítið af bjórGlottandihehe eða þannig. Bara að leyfa ykkur að heyra hvað ég hef það fínt í Norge, eina sem vantar er sólin en það skiptir nú ekki miklu máli, er búin að hafa nóg sól í sumar á Íslandinu góðaHlæjandiEn það er nú samt ekki búið að ganga nógu vel hjá þeim hérna því þau eru ekki komin í húsnæðið ennþá, nú er verið að bíða eftir einhverjum viðgerðum og eins og alltaf þarf að bíða eftir iðnaðarmönnum, það er sama hvað landið heitir, alltaf sama tuggan með þá Öskrandiennnn þetta lagast, fall er fararheill. Stelpurnar eru ánægðar og það er það sem skiptir máli, þeim hlakkar til að fara í skólann og geta ekki beðið eftir að flytja, en þetta hús er gamalt, en risastórt og því nóg pláss fyrir þessa stóru fjölskyldu, en bara svo að þið vitið það þá er ég rosalega rík, ég á 2 frábær börn (já já ég veit að þau eru þrjátiu og eitthvað Ullandi) 2 ekki síðri tengdabörn, 5 barnabörn og eitt á leiðinni, betra getur þetta nú ekki verið. Allavega þá kem ég heim á þriðjudaginn, og vonandi hunskast ég við að klára ritgerðina um laugaveginn Skömmustulegur mig hlakkar líka ekkert smá til að koma heim þar sem það er eitt og annað að gerast þar, heyrumst síðarSvalur

Heia NorgeBerglind Edvardsdóttir

Jæja ég er með þvílíka bloggstíflu að hálfa væri nóg, en ég er byrjuð að skrifa um laugaveginn set það inn við tækifæri, þetta er heljarinnar ritgerð GlottandiÉg er sem sagt að fara til Noregs að knúsa dúllurnar mínar, allar nema GrétarUllandiá morgun, og hlakkar mig ekkert smá til þess, kanski næ ég að skrifa ritgerðina um laugaveginn eitthvert kvöldið þar, kemur í ljós, en sem sagt þá er það bara .
heia Norge, vi ses igjen om 11 dagerSvalur

LaugavegurinnBerglind Edvardsdóttir

Jæja þá er það laugavegurinn á morgun, en þetta er eitthvað sem mig er búið að hlakka til í allan vetur, meðan ég var alltaf með hálfgerðan kvíðahnút þegar ég var að fara á fjöllin, hehe veit nú ekki alveg af hverju en held´nú samt að það hafii verið af því að ég hélt að ég myndi ekki meika alla leið á toppinn en er nú löngu búin að sjá að það er seigt í þeirri gömlu Ullandiallavega þá er mig búið mikið að hlakka til þessarar ferðar og ég veit að hún á eftir að verða algert æði, fyrir það fyrsta þá spáir dúndurveðri og svo eins og venjulega þá er´félagsskapurinn frábær og síðan verður nú rosalega gaman að spreyta sig á því að sofa 5 nætur í tjaldi hehe svei mér þá það verður æði að skríða úr tjaldi að morgni og borða morgunmat og halda svo af stað í margra tíma gönguGlottandi´jæja ég hef þetta ekki lengri að sinni, skýrsla eftir ferðina, Svalur

BloggstíflaBerglind Edvardsdóttir

Jæja nú er kominn tími á nýja færslu og þó fyrr hefði verið Skömmustuleguren ég hef bara ekki verið í stuði, en sem sagt þá fór ég á Kálfstinda og var það svona frekar erfið ferð verð ég að segja, ekki svo ýkja hátt en alveg ferlegt að labba í, sandur möl mold og grjót, þetta rann undan fótunum á manni við hvert skref, og efst bara lóðrétt klettabelti sem var erfitt að klifra í vegna þess að það var svo mikið af lausu grjóti sem gat hrunið við minnstu snertingu, þannig að það varð að fara rosalega varlega, þetta hafðist nú allt saman en ég segi það aftur að þessi ferð eina ferðin sem ég hef verið stressuð og já smeyk á köflum, en ég ætla ekki að skrifa meira um þessa ferð þar sem soldið er síðan ég fór og þá dofnar minningin, þess í stað ætla ég nú að skrifa um þessa frábæru helgi sem er að líða en ég ásamt ríflega 40 sólófélögum og um 16 börnum er ekki alveg viss um tölunaUllandien ég mætti á föstudagskvöldið upp í bústað hjá Jóa og foreldrum hans, ásamt Ingu vinkonu minni vorum við svolítið seint á ferð, en það var nú  allt í lagi af því að okkar beið rúm í bústaðnum hjá foreldrum Jóa en þau voru svo elskuleg að leyfa okkur að gista inni þar sem ég á engan útilegbúnað, allavega þá fórum við nú að sofa ekki svo seint því að það var ræs kl 8 og nú átti að fara á Heklu í annað skiftið því að í vetur þegar ég fór þá var um það bil helmingur af fólkinu sem sneri við þegar uþb 100 m voru eftir á toppinn ætla ég nú ekki að fara nánar út í astæðurnar hér en svona er þetta bara stundumGlottandien sem sagt þá var lagt af stað um kl 9 frá bústaðnum og um ellefu var lagt í gönguna, veit nú ekki hvað ég á að skrifa um hana annað en það gekk bara vel, var reyndar frekar þung á mér nánast alla leið, ennnn ég gerði svolítið skemmtilegtHlæjandiþegar ég var komin á toppinn, þá gerði ég það sem ég er búin að vera að hugsa um í nokkrar vikur, nefnilega að fara tilbaka á þann stað sem ég sneri við í vetur, og fara aftur á toppinn (sumir eru bara klikkaðri en aðrir) ég hringdi í Jóa þegar ég var á toppnum en ég var búin að nefna þetta við hann, og kom þá í ljós að hann var á þessum slóðum sem við vorum á þegar við snerum við í vetur, og tók ég þá ákvörðun að fara tilbaka þannig að ég setti bara í gírinn og hljóp niður og þá meina ég að hlaupaBrosandihef líklega verið 20 mín að hlaupa niður, tók nú því miður ekki tímann á þessu, en ég náði niður til þeirra þar sem þau höfðu ákveðið að fá sér að borða, (heppin ég ) og var svo lagt í hann aftur, reikna ég með að þetta hafi tekið mig kanski 50 mín í allt, en ég sem sagt er búin að labba 2var á Heklu og skrifa 2var í gestabókina, alveg meiri háttar skemmtilegt fyrir migBrosandiþessi ganga tók um 6 klst , 3klst styttri en í vetur sem skýrist af vondri færð þá og að við urðum að labba einn og hálfan km bara að Heklu, og var sú ganga því bæði lengri og helmingi erfiðari, nú svo má nú segja að heimferðin hafi verið skrautleg, það átti að fara í laug til að skola af sér svitann en það gekk nú ekki því að fyrsta laugin var með bilaðar sturtur og hinar 2 búnar að loka þannig að við enduðum í bústaðnum i útisturtu sem var búið að seta upp, en það var nú bara skemmtilegt ævintýri, síðan var eins og vanalega búið að gera klára þessa líka dýrinds mátltið með deser og alles, og veðrið var þvílík dásemd að hálfa væri nóg, svo var setið að spjalli fram til miðnættis og þáaaa var farið í pottinn, haldiði að það sé eitthvað sem toppar þetta, ég held bara ekki.Ég fór síðan að sofa um 3 og var vöknuð rétt fyrir átta í þvílíkt ´blíðuveður, enda sólbrennd eftir þvi, en sem sagt dagurinn eftir göngu var æði , bara legið og sólað sig, borðað  og spjallað, þetta var algerlega meiri háttar helgi,ég ætlaði nú ekki að fara heim fyrr en að kvöldi en ég var orðin það brennd og heit af sólinni að við Inga ákvaðum að drífa okkur heim um miðjan daginn sem var ágætt, þá losnuðum við við traffikina í bæinn, síðan er næsta ferð á Laugaveginn 15 júlí, skrifa nú örugglega eitthvað fyrir þann tímaSvalur 

KálfstíndarBerglind Edvardsdóttir

Jæja ætla bara að segja frá því að ég fór í smá upphitunargöngu fyrir Heklu gömlu sem við ætlum að ganga á á næstu helgi, það voru nefnilega nokkrir sem ekki fóru alla leið og er verið endalaust að nú manni því um nasir, þannig að það  á að klára það mál á næstu helgi, en í dag sem sagt löbbuðum við á Kálfstinda frábær ferð eins og venjulega, en þar sem ég er tímabundin (er að fara á Fridays  að borða) þá ætla ég að skrifa nánar um þetta annað hvort í kvöld, nótt Ullandieða á morgun þegar ég hef betri tíma Svalur

fyrir dúllurnar mínarBerglind Edvardsdóttir

Jæja ég hef nú ekki verið mjög dugleg að skrifa undanfarið en núuu verður breyting á bæði á hvað ég skrifa um og skrifa oftar, það er nefnilega þannig að krakkarnir mínir, Harpa Grétar og dúllurnar mínar Berglind Rós, Tinna Karen, Ína Karitas og Íris Eva voru að flytja til  Noregs og ætlar amma (það er ég : )  ) að vera dugleg að blogga fyrir þau, þannig að ég ætla að skrifa um það sem ég er að gera vonandi alllt bara skemmtilegtBrosandiog seta inn myndir og solleis, mig langar líka að segja takk við þá sem eru að lesa bloggið mitt, það hefur verið mér hvatning til að halda áfram þegar ég sé hversu margir eru þó að fylgjast með því hvað ég hef verið að labba í vetur, og ennþá skemmtilegra er það að lesa allar þessar hlýju kveðjur sem ég hef fengið og líka bara kvitt in sem ég hef fengið, bara frábært, takk fyrir migSvalur

Könnun

Hvernig finnst ţér nafniđ á nýja gönguklúbbnum???

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Berglind Edvardsdóttir
  • Stađur: Hafnarfjörđur
  • Atvinna: stjórnarráđsfulltrúi : )
  • Hjúskaparstađa: hmmmm ;)

Stjörnuspáin mín frá Mbl.is

26.08.08
Vatnsberi:
Tilhneiging ţín til ţess ađ dreyma dagdrauma verđur ţér til happs. Haltu áfram ađ hugsa um ţađ sem kemur á morgun. Hugmyndir sem virđast lifa sjálfstćđu lífi öđlast eigiđ líf.

Göngufélagar og annađ skemmtilegt fólk ; )

Atburđarteljari

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leit